Færsluflokkur: Íþróttir
28.4.2011 | 09:37
Leiðinlegt
Ég hef viðbjóð á þessum heimi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2010 | 08:42
Ekkert til að hafa áhyggjur af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.11.2009 | 04:15
Ríki í ríkinu
Það hlýtur að vera óeðlilegt í sjálfu sér að borgaralegir dómsstólar eigi ekki að ná til félagasamtaka. Reglur FIFA þess efnis er til þess fallið að þrýsta á um að óháðir dómstólar fjalli ekki um knattspyrnuhreyfinguna en þetta lið telur greinilega að knattspyrnuhreyfingin fari á svig við lög. Að mati FIFA þolir það ekki skoðun og telur sig vera hafin yfir lög hvers lands. Það út af fyrir sig ætti að vera lögbrot. Myndi einhver sætta sig við að íþróttafélög á Íslandi mættu ekki leyta til dómstóla ef uppi er óeðlileg starfsemi innan íþróttasambandsins. Það er kannski bara þannig að íþróttafélög geti ekki leytað til dómstóla, spyr sá sem ekki veit.
FIFA hótar að reka Chile úr HM | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.11.2009 | 19:10
Ferguson getur verið mjög óhress
Ferguson óhress með dómarann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 19:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
30.8.2009 | 15:45
Ævintýrið úti eða upphafið að einhverju meiru
Eftir að hafa horft á stelpurnar okkar tapa öllum sínum leikjum í evrópukeppni landsliða ætti maður að vera dapur í bragði. En það er eitthvað sem segir manni að þetta sé ekki endalok ævintýrisins heldur einungis upphafið að einhverju enn stærra.
Það þurfti hvorki meira né minna en dauðariðil handa stelpunum til að slá þær úr keppninni. Liðin sem þær (við íslenska þjóðin) vorum að keppa við voru allar á topp 10 yfir sterkustu þjóðir heims í kvennaknattspyrnunni. Það væri eins og karlaliðið myndi lenda í riðli með Holandi, Argentínu og Króatíu. Reynsluleysið hefur örugglega hrjáð okkur þar sem það er engin hefð fyrir stórmótum í knattspyrnu íslendinga hvorki í kvenna né karla. Ekki er heldur hægt að segja að margar landsliðskonur hafi verið í atvinnumennsku þangað til á síðustu leiktíð eftir að landsliðið fór að vekja athygli fyrir góðan árangur.
Dómarinn var okkur heldur ekki hliðhollur þó að það sé engin afsökun. Þeir eru misjafnir eins og þeir eru margir en engu að síður féllu dómarnir ekki okkar megin. Það virtist þó ekki hafa áhrif á stelpurnar okkar nema í fyrsta leik þar sem ég tel að dómarinn hafi haft verulega áhrif á úrslit leiksins.
Hafa ber í huga að á tímabili hafa ekki verið nema örfá lið sem hafa haft kvennalið á sínum snærum. Fjöldinn allur af efnilegum stelpum hafa hætt knattspyrnuiðkun einfaldlega af því að það er ekkert lið til að spila með. Ekki einungis erum við smáþjóð heldur höfum við aðeins brot úr þeim áhugasömu stelpum sem vildu vera að spila knattspyrnu til að velja úr. Áhugi á íslenskri kvennaknattspyrnu hefur þó verið að glæðast á síðustu árum og sum félög að endurvekja kvennaflokkinn. Mótið núna mun eflaust hvetja fleiri stelpur til að stunda þessa íþrótt sem skilar sér í sterkari hóp síðar meir.
Það er því trú mín að þetta fyrsta evrópumót meistaraflokks í knattspyrnu verði upphafið að meiri árangri í framtíðinni og við getum verið stolt af stelpunum okkar.
Eins marks tap gegn Þjóðverjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2009 | 15:23
Eitt gleymdist
Markaðsmaskínan Real Madrid | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.8.2008 | 10:48
Upphafið að endinum
Þó að knattspyrnuliðin séu auðvitað að hugsa um sinn hag er ég hræddur um að þetta gæti komið aftan að þeim. Það er alveg ljóst að ef mér byðist að spila á Ólympíuleikunum en íþróttafélagið mitt kæmi í veg fyrir það væri það upphafið að endinum á samstarfi mínu og félagsins. Ég trúi ekki öðru en að sérhver íþróttamaður eigi sér þann draum að komast á Ólympíuleikana og ég er hræddur um að svona framkoma íþróttaliða eigi eftir að sitja í leikmönnum þess.
Messi ekki á Ólympíuleikana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.6.2008 | 16:53
Dónalegur Donadoni
Ég vildi gjarnan spyrja Donadoni hvort hann líti svo á að varnarmennirnir þurfi að leggja minna á sig með sínum félagsliðum heldur en sóknarmennirnir? Og ef það er þannig að þeir eru minna þreyttir og geta því skorað fleiri mörk af hverju hefur hann þá ekki fleiri varnarmenn í liðinu og færri sóknarmenn svo liðið skori meira?
Ég held að Donadoni ætti að lýta í eiginn barm, þeir voru hálfgrátandi fyrir leikinn á móti frökkum þar sem þeir lýstu því yfir að allir væri vondir við sig. Þeir grétu yfir því að Svíar og Danir hafi gert samsæri gegn sér, dómararnir væru með samsæri gegn sér og Hollendingar væri í þann mund að hrinda af stað samsæri til að útiloka þá frá frekari keppni.
Það er aldeilis karlmennskan hjá þeim að skæla svona í fjölmiðlum hvað aðrir eru vondir við þessar viðkvæmu sálir. Þrátt fyrir að hafa unnið í gær manni fleiri gegn vonlausum frökkum þá finnst mér þeir ekki sannfærandi. En ef það hætta allir að gera samsæri gegn þessum vesalingum gæti þeir orðið svo heppnir að vinna mótið ef Berlusconi nær að hugga þá fyrir næsta leik. Ég vona að ég þurfi ekki að horfa á grenjuskjóðurnar vinna þetta mót.
Donadoni ver sóknarmenn sína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.4.2008 | 09:50
Að standa í fæturnar
Ég held að Drogba geti nú lítið sagt greyið. Hann setti nú hnéð í andlitið á United manni nýlega og ætlaði aldeilis að spila sig sem fórnarlamb aðstæðna með því að henda sér í grasið.
Í stuttu máli, það var sniðugt hjá Benitez að gera þetta myndband því leikaraskapur þessa manns er skömm fyrir ensku deildina í heild sinni.
Didier Drogba: Ber ekki lengur virðingu fyrir Benítez | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.3.2008 | 17:44
Á eftir tapi hjá United kemur...
Afsökunarbeiðni frá Queiroz | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)