13.12.2008 | 21:06
Sykur
Ef þú drekkur kók eða annað sykrað gos skaltu gera smá tilraun. Prófaðu að mæla 200gr af sykri í bolla eða glas. Síðan skaltu borða þennan sykur og athuga hvað þér finnst. Þetta er sambærilegt magn sykurs og þú færð úr 2L Coca Cola.
Njótið
12.12.2008 | 15:17
Innbyggður galli í stjórnkerfinu
12.12.2008 | 10:20
Flokkadrættir
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2008 | 12:21
Björgunarleiðangur til að...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.11.2008 | 21:56
Krossari í 7 ára afmælisgjöf

23.10.2008 | 11:12
ESB hefði ekki komið í veg fyrir núverandi vanda
Það má varla opna fjölmiðil án þess að tekið sé viðtal við einhvern sem vill í ESB. Þar er allt fallegt og fagurt, þar eru ekki vandamál og það afléttir allar okkar áhyggjur til framtíðar.
Ég er ekki sannfærður um að lífið sé svona einfalt að gera Ísland að fylki í evrópu eða ameríku leysi vanda okkar. Orsök okkar vandamála er ekki óheppni, tilviljun eða sjálfstæði þjóðarinnar. Bankarnir voru einfaldlega orðnir allt of stórir til að íslenski seðlabankinn gæti staðið á bakvið þá og þess vegna voru þeir staddir á brauðfótum. Þar á ofan eru bæði fyrirtæki og einstaklingar landsins almennt mjög skuldugir, miklu meira en eðlilegt getur talist. Þessi skuldsetning var notuð í neyslu og gerði íslendinga óhóflega viðkvæma fyrir efnahagsniðursveiflu. Ég sé ekki að það komi ESB neitt við að við vorum svona skuldsett. Það er bara kúltúrinn í þjóðfélaginu þó að ESB sinnar vilji halda öðru fram. Við hefðum lent í jafn miklum vandræðum innan ESB. Því til marks eru margar þjóðir innan ESB í miklum vanda bæði smáar þjóðir og stórar og er skemmst að minnast á frændur vora í Danmörku.
Það er mér til efs að við hefðum fengið mildari meðferð þó að við værum í ESB. Seðlabankar ESB og Bandaríkjanna vildu kenna íslendingum í eitt skipti fyrir öll að taka ábyrgð á eigin gjörðum og hvernig gott væri að haga fjármálum sínum. Hagsmunir seðlabanka ESB í þá áttina hefðu verið enn mikilvægari ef Ísland væri í ESB. Ekki vilja þeir hafa óráðssíufólk innan sambandsins. Þegar við þetta bætast svo kosningabarátta Brown og stórfelld mistök í efnahagsstjórn landsins þarf ekki lengur að kenna óheppni um vandamál okkar.
Sumir gætu sagt að ef við værum í ESB værum við ekki með krónuna. Vissulega væri gjaldmiðillinn ekki gjaldþrota og erlendu íbúðalánin hefðu ekki hækkað um 100% á einu ári. En þá hefði landið líka verið enn skuldugra því vextirnir hefðu áfram verið lágir þrátt fyrir ofneysluna og heimilin getað skuldsett sig meira. Það er nú þannig að fólkið skuldsetur sig þannig að það rétt geti borgað reikningana sína. Eins og félagi minn sagði, "þegar ég loksins sé ljósglætu í fjármálunum er ég fljótur að taka nýja raðgreiðslu til að slökkva ljósið". Ég held að þetta sé ómeðvitaður hugsunarháttur margra og kemur það í bakið á okkur núna og það er alveg óháð ESB. Verðtrygging er þáttur sem ég heyri líka varðandi ESB en verðtrygging er séríslenskt fyrirbæri. En við getum alveg sleppt verðtryggingu þó að við séum ekki í ESB. Ég veit ekki til þess að Kína, Sviss eða Noregur séu í ESB en samt er engin verðtrygging þar. Þetta er því einungis pólitísk ákvörðun hvort við höfum verðtryggingu eða ekki.
Þó að við göngum í ESB höldum við áfram efnahagslegu sjálfstæði okkar að hluta og ég sé ekki að við myndum læra mikla hagfræði við það eitt að ganga í ESB. Sumir hafa haldið því fram að það sé betra að láta þingmenn annara landa setja lög um ísland. Það er nú meiri uppgjafaþingmaðurinn sem gefur það í skyn og gjaldfellir þar með eigin trúverðugleika og dregur svo í efa eigið ágæti að hann ætti hið snarasta að hætta afskiptum af stjórnmálum því hann hefur lýst vantrausti á sjálfan sig.
Innan eða utan ESB, með sjálfstæðan eða utanaðkomandi gjaldmiðil höfum við sjálf komið okkur í þau vandræði sem við erum í. Ekki gjalmiðillinn sem slíkur, óheppni, tilviljun eða óvinveittir erlendir aðilar.
![]() |
Endurtaki sig aldrei |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.10.2008 | 12:44
Hver er ástríða Raikkonen
Þessi ummæli og árangur hans í ár vekja upp hjá mér spurningar um hver sé ástríða kappans þessa stundina. Stærstan hluta keppninnar í ár hefur mér virst hann vera utan við sig, gert mörg mistök og ekki hafa það hungur sem þarf til að fara fram úr keppinautum sínum. Lágmark grimmdarinnar fannst mér í Ítalska kappakstrinum þar sem Hamilton sýndi hvers vegna hann er kominn með fleiri stig en Finninn þegar hann tók fram úr hverjum bílnum á fætur öðrum en Raikkonen dólaði aftarlega alla keppnina og átti engin svör við grimmd McLaren ökuþórnum. Ég tel að neistinn sé ekkitil staðar hjá Raikkonen og hann þurfi á sálfræðilegri aðstoð að halda til að komast aftur á rétta braut.
![]() |
Räikkönen sama hver vinnur heimsmeistaratitilinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.10.2008 | 18:11
Stærsta bankarán sögunnar
Enginn er annars bróðir í leik. Það sannast á þessu máli þar sem Gordon Brown náði að losa sig úr eigin hengingaról og herða hana að Kaupþingi. Hann hafði enga ástæðu til að ætla að fjármunir Icesave yrðu ekki greiddir en telur þess í stað ástæðu til að baða sig í fjölmiðlaljósi vígreifur gegn íslenskum víkingum sem fara ránshendi um sparifé breta. Það þarf ekki að hugsa sig lengi um hvaða hagsmuni Brown er að verja en það eru hans eigin. Það er ekki langt í kosningar og Brown er að tapa þeim áður en kosningarbaráttan hefst. Hann var heppinn að vera ekki rekinn af eigin flokki nýlega og er búinn að horfa á hrun flokksins hvað eftir annað í kosningum og skoðanakönnunum.
Hann fékk því kærkomið tækifæri að finna sökudólg í lítilli vinalausri þjóð sem allir hafa snúið baki við. Líklega er þorskastríðið honum líka í fersku minni og ekki leiðinlegt að ná fram síðbúnum hefndum á þessari ránþjóð. Þjóð sem seðlabankar Bandaríkjanna, evrópu og Bretlands brugðust á ögurstundu. Líklega hafa þeir ætlað að kenna sigurvegurum kapítalismans lexíu fyrir hagfræðinga framtíðarinnar en núna bítur sú ákvörðun í skottið á þeim. Þegar menn horfa á heilt hagkerfi fara á hliðina eykst bara svartsýnin á markaðnum og eykur á kreppuna og hlutabréf falla sem aldrei fyrr og enn fleiri bankar eru lentir í vandræðum en áður.
Beiting hryðjuverkalaga á íslenskan banka getur þó verið tvíbent sverð í höndunum á Brown. Í fyrsta lagi voru margir sem óttuðust að þessi lög yrðu misnotuð sem núna hefur orðið að veruleika og eykur á gagnrýni þeirra. Í öðru lagi hefur Brown með þessu upphlaupi ráðist á heila þjóð og sett eina íslenska bankann sem stóð í báðar fætur á hausinn með þeim afleiðingum að fjöldi fólks bæði í Bretlandi og á Íslandi missir vinnuna og enn fleiri tapa gríðarlegum fjármunum. Brown hefur því með þessu kosningabragði rænt fjöldann allan af eigin þegnum, fyrirtækjum, líknarfélögum og sveitarfélögum bæði starfi, æru og gríðarlegum fjármunum til að upphefja sjálfan sig.
Ef að breska pressan er ekki eins andvaralaus og íslenskir fjölmiðlar og kafa ofaní upphlaup Brown og vindi ofan af þessum föðurlandssvikum hans gagnvart Bresku þjóðinni verður það til þess að þetta verður hans banabiti í Breskum stjórnmálum.
![]() |
Guðni Ágústsson: Kærum Bretana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.9.2008 | 15:05
Þú getur nálgast tímaritið ókeypis
Á www.hvar.is geta íslendingar nálgast þetta tímarit og lesið sér til um þessa grein ef þeir vilja það. Efst til vinstri eru flýtivísanir á ýmislegt og þar er næst efst hægt að smella á "Tímaritalistar A-Z" og nálgast þetta rit.
Það er auðvitað miklu fleiri rit á hvar.is sem vert er að skoða fyrir fróðleiksfúsa íslendinga í öllum efnisflokkum.
![]() |
Karlar ofmeta persónutöfra sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.9.2008 | 21:21
Ég er að þrífa


Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)