21.1.2008 | 16:38
Enda er geðvonska og leti allsráðandi
Ég held að þetta sé rétt.
- Kíkti á heimabankann og eyddi nánast því sem ég á eftir fyrir þennan mánuð
- Vaknaði klukkan þrjú í nótt og gat ekki sofnað aftur
- Letin er að drepa mig og ég nenni alls ekki á æfingu á eftir
- Hlutabréfin og krónan hrundu sem aldrei fyrr
- Veðurfréttirnar eru leiðinlegar
- Ég er í þunglyndi út af handboltaliðinu okkar
- Ég sagði kennaranum mínum til syndanna í tölvupósti (sem maður á ALDREI að gera)
- Það var keyrt á bílinn minn
En sem betur fer er þetta svona "venjuleg" leiðindi. Ekkert sem lagast ekki með góðri tónlist eða góðum félagsskap
Versti dagur ársins í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Slabb
Óskar (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 19:41
DAMN!
Svo líka nýr meirihluti í borginni og nýr borgarstjóri!
Ekki góð vika hjá þér félagi
Fanný Guðbjörg Jónsdóttir, 24.1.2008 kl. 16:23
Nei hann var til að bæta gráu ofaná svart
Steinn Hafliðason, 24.1.2008 kl. 18:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.