Skjálfti og hræddir sunnlendingar

Blaðamaður á Visir.is talar um jarðskjálfta upp á 4,0 hjá Gróttu í dag og segir að Selfyssingar hafi þust út á götu. Ekki er hins vegar minnst á einn Reykvíking sem sá ástæðu til að óttast. Sjá má fréttina hér.

Ég á bágt með að trúa því að fólk á Selfossi hafi þust út á götur vegna slíks skjálfta í Reykjavík en hins vegar hefur sumum eflaust brugðið illilega við skjálftann sem varð ca undir Mjólkurbúi Flóamanna og var á milli 1-2 á Richter og þeirri hrinu sem hefur staðið þar síðan í dag. Þar hafa skjálftarnir farið upp í 3 á richter og eiga flestir upptök sín upp með Ölfusá.

Sjá má kort sem hægt er að stækka af jarðskjálftunum hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigga

Steinn skjálftafræðingur... hvað er atburður af óþekktum upprunar??? er það fyrir geimverubrottnám og e-ð spennandi?

Annars finnst mér þetta ótrúlega léleg frétt þarna á vísi, eiginlega alveg með eindæmum léleg... allavega finnast mér heimildiranar e-ð loðnar og ósannfærandi

Anna Sigga, 21.11.2007 kl. 14:03

2 Smámynd: Steinn Hafliðason

Já það var skondið að lesa fréttina. Sá ekki alveg tengingu milli Reykvískum jarðskjálfta sem ég fann ekki sjálfur hér en fékk fólk til að hlaupa út á götu á Selfossi. Mér skilst hins vegar á ættingjum mínum á Selfossi að mörgum hafi brugðið við skjálftana sem urðu fyrir austan fjall enda nánast undir byggðinni og á mjög litlu dýpi.

Ég verð þó að segja fréttamönnum til tekna að þeir geta ekki verið sérfræðingar í öllu og þegar kappið um að vera fyrstur með fréttirnar ber gæðin ofurliði þá er oft hægt að brosa út í annað yfir þeim.

Steinn Hafliðason, 21.11.2007 kl. 16:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband