25.8.2009 | 12:49
Ég kem heim kl hálffimm
Sonur minn er orðinn 6 ára og var að byrja í skóla í morgun. Hann er búinn að vera spenntur í marga dag og vikur.
Í morgun vaknaði hann snemma borðaði morgunmatinn sem aldrei fyrr og skellti sér í nýja Henson gallann. Hann fékk það svo í gegn að fá hanakamb á hausinn. Áður en hann gekk út um dyrnar setti hann á sig Batman úrið og sagðist koma aftur heim kl hálf fimm.
Athugasemdir
Híhí. Gott að snáðinn er spenntur fyrir skólanum...
Sigurjón, 30.8.2009 kl. 00:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.