Búinn í prófum

Loksins kláraði ég síðasta prófið í gær. Ég er búinn að safna upplýsingum um hvar ég er í lífinu og komist að eftirfarandi niðurstöðu:

1. Í dag er 20.desember 2007FootinMouth

2. Konan mín og barnið mitt búa enn í sama húsi og ég. Hún er ekki búin að skilja við migInLove

3. Það eru að koma jól og ég á eftir að gera allt nema kaupa jólagjafirWhistling

4. Ég keypti mér bíl einhvern tíman í haustCool

5. Ég hélt að það væri ennþá haust út af veðri en konan mín er búin að sannfæra mig um að það sé kominn desemberGasp

6. Ég er búinn að skipta um vinnuWink

7. Siggi svili er búinn að fara til Kína í nokkra mánuði og kominn afturShocking

8. Anton svili er búinn að búa hjá okkur í allt haustSmile

9. Arsenal er efst í ensku deildinniSmile

10. Það er kominn nýr nágranniUndecided

Já það er margt sem gerist meðan hugurinn er í skólanum. Hlýtur að vera óþægilegt að vera í dái í marga daga, vikur eða mánuði og umhverfið og jafnvel samfélagið er breytt þegar maður vaknar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband