19.3.2008 | 22:29
Letiheimsókn
Fékk letina í heimsókn í kvöld. Búinn að vera að skrifa lokaritgerðin á fullu síðustu helgar og kvöld eftir kvöld. Síðustu dagar fóru svo í að vera roomservice og annað meðan konan mín og sonur minn voru rúmliggjandi í flensu.
Í kvöld bankaði flensan svo aftur við hjá konunni minni og þá nennti ég nú ekki meiru. Ég leyfði letinni að taka öll völd og fór út í sjoppu til að elda kvöldmatinn. Ég nenni bara hvorki að læra, taka til eða aðra skynsamlega hluti. Letin er búin að sannfæra mig um að hanga á netinu fram eftir kvöldi.
Athugasemdir
Já úff letin já. Ég fékk hana í heimsókn fyrir nokkrum árum, svo fór hún ekkert aftur og hefur búið sér bólstað í mér.
Brúnkolla (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 22:54
Steinn Hafliðason, 19.3.2008 kl. 22:58
Gleðilega páska
Brynja skordal, 20.3.2008 kl. 09:59
Þakka þér sömuleiðis
Steinn Hafliðason, 20.3.2008 kl. 16:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.