Fjandans ökuníðingur

Ég á ekki orð. Sat út í bíl á bílastæði fyrir utan skólann í morgun og var að mana mig í að hlaupa inn í gegnum rokið og rigninguna. Fyrir framan mig er bíl bakkað úr stæðinu rólega. Svo stoppar bíllinn enda farinn að nálgast mig. Allt í einu heldur hann áfram og bakkar á mig þar sem ég sit í bílnum með ljósin á. Ég náði að flauta á hann um sama leyti og hann keyrir á. Þvílíkur asni, ég ætla að fara úr bílnum að tala við kauða en fíflið brunar bara í burtu án þess að ég fái rönd við reist.

XXXXXX (strikað út af ritstjóra) maður keyrir á bíl og keyrir í burtu vitandi það að manneskjan var í bílnum. Ég varð svo hissa að ég aulaðist ekki til að ná númerinu á þessum XXXXX (aftur strikað út vegna þess að börn geta séð þessa færslu).

Ég skora á þennan aumingja að gefa sig fram og taka ábyrgð á gjörðum sínumAngry


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband