Færsluflokkur: Matur og drykkur
30.3.2010 | 12:13
Ekki beint það sem við gerum um páskana er það?
Í fyrsta lagi eru páskaegg sjaldnast úr dökku súkkulaði og því er þetta varla viðeigandi fyrirsögn í tengslum við páskaeggjaneyslu. Í öðru lagi borða íslendingar margfalt það magn af sykri og sætindum sem æskilegt getur talist og í þriðja lagi hef ég fá séð sem borða einn lítinn bita á dag af páskaegginu sínu. Miklu algengara er að sjá krakka útataða í framan af páskaeggjaáti líkt og þau væru nýdottin á andlitið í drullupoll og svo ráða foreldrar ekki við krakkana vegna sykurofvirkni enda ekki óalgengt að krakkar borði 2-3 páskaegg yfir hátíðina oft stærstan hluta á sama deginum. Að lokum fá svo krakkagreyin illt í magann af öllu saman.
Páskaegg góð fyrir heilsuna? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.12.2008 | 21:06
Sykur
Ef þú drekkur kók eða annað sykrað gos skaltu gera smá tilraun. Prófaðu að mæla 200gr af sykri í bolla eða glas. Síðan skaltu borða þennan sykur og athuga hvað þér finnst. Þetta er sambærilegt magn sykurs og þú færð úr 2L Coca Cola.
Njótið
15.5.2008 | 00:29
Góð kaka
Fór út í búð áðan og keypti mér daim tertu (ekki láta samviskuna mína vita). Kakan var svo girnileg að starfsmaðurinn hafði sérstaklega orð á því og byrjaði nánast að slefa meðan hún afgreiddi mig. Á leiðinni út fann ég hvernig hún mændi á mig ganga út með þessa góðu köku eins og hún ætlaði bara að hlaupa á eftir mér og hrifsa hana af mér. Kannski ekki en næstum því. Ég er allavega að slefa þessari köku ofaní mig núna.